Jóga Nidra

Jóga Nidra er ævaforn hugleiðslu og djúpslökunaraðferð sem örvar líffræðilega ferla svefnsins til að fara inn á mörk svefns og vöku.

Oft er talað um „jógískan svefn“ en til að geta sofnað á kvöldin þurfum við fyrst að sleppa tökum á hugsunum okkar og það er nákvæmlega það sem Jóga Nidra gerir, nýtir þennan náttúrulega feril til að aftengja hugsanir okkar og hvílast án þess að sofna.

Jóga Nidra losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Getur hjálpað til við að ná tökum á “burnout” einkennum, órólegum huga, kvíða, þunglyndi og til að létta á líkamlegum kvillum.

Jóga Nidra er liggjandi hugleiðslutækni sem byggir á öndun og slökun, núvitund, líkamsvitund og tengingu við hið innra sjálf.

Hugrún Linda

Hugrún Linda Guðmundsdóttir

Félagsráðgjafi MA, markþjálfi og núvitundarkennari

Hugrún er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni. Hugrún hefur sérhæft sig í jákvæðri sálfræði, markþjálfun, streitustjórnun, núvitund og hugleiðslu.

Verkfærakistan

Í verkfærakistunni er að finna greinar sem innihalda ýmis bjargráð sem geta hjálpað til við að takast á við þær áskoranir sem lífið býður uppá.

Shopping Cart
Scroll to Top