Streitustjórnun og seigluþjálfun

STREITUSTJÓRNUN OG SEIGLUÞJÁLFUN

Stress management and resiliency training (SMART) ™
Þetta námskeið kennir fólki að draga úr streitu og streitueinkennum, ná meiri stjórn á viðbrögðum líkamans við streitu og langvarandi álagi, draga úr sjúkdómseinkennum og efla lífsgæði og vellíðan. Kenndar eru aðferðir til að efla innri styrk og seiglu en seigla er hæfileiki til að viðhalda heilbrigðu og stöðugu andlegu og líkamlegu ástandi í gegnum álag og streitu. Hægt er að þjálfa upp þennan eiginleika með ýmsum aðferðum.

Námskeiðið byggir á tengingu huga og líkama (Mind – Body Medicine) og stutt af læknisfræðilegum rannsóknum frá Harvard Medical School og Benson-Henry Institute. Mind-Body Medicine hugmyndafræðin byggir á því að venjur, hugsanir, tilfinningar. hegðun og samskipti eru talin hafa mikil áhrif á líkamlega heilsu og sömuleiðis hefur líkamleg heilsa áhrif á hugann og andlega heilsu. Rannsóknir sýna jákvæð áhrif á hina ýmsu sjúkdóma og ástand sem tengjast streitu og streitutengdum sjúkdómum.

Aðeins heilbrigðismenntaðir aðilar fá leyfi til að kenna þetta námskeið að undangenginni þjálfun hjá Benson- Henry Institute for Mind Body Medicine at Massachussetts General Hospital.
Við vitum að 60-90% af heimsóknum til heimilislækna eru vegna sjúkdóma sem tengjast streitu. Við vitum líka að mind-body medicine er oftast árangursríkasta meðferðin til að meðhöndla streitu eða koma í veg fyrir að streita fái að þróast í sjúklegt ástand.

Hvort sem fólk hefur verið greint með sjúkdóma, finnur fyrir langvarandi streitu- eða sjúkdómseinkennum eða vill einfaldlega draga úr streitu og auka lífsgæði sín, þá gæti þetta námskeið hentað.

Hentar meðal annars fólki sem glímir við:

  • Kvíða
  • Vægt eða miðlungs þunglyndi
  • Langvarandi verki
  • Svefnleysi eða þreytu
  • Höfuðverk eða mígreni
  • Sjálfsofnæmissjúkdóma
  • Meltingarfærasjúkdóma
  • Húðsjúkdóma s.s. soriasis og exem
  • Einkenni sem tengjast astma eða ofnæmi
  • Ýmsa gigtarsjúkdóma
  • Aðra sjúkdóma og einkenni sem versna undir álagi og streitu

Þátttakendur læra margvíslegar aðferðir byggðar á vísindum um tengingu hugar og líkama (Mind body medicine) sem og inngrip sem byggja á sjálfsvinnu:

Meðal annars:

  • Að þekkja sín eigin streituviðbrögð.
  • Ýmsar hugleiðsluaðferðir og öndunaræfingar til að virkja slökunarviðbragð líkamans sem eru varnir líkamans við innri streitu.
  • Að breyta hugsanamynstrum og tilfinningalegum viðbrögðum til að fara frá streitutengdum hugsunum í hugsanir byggðar á seiglu.
  • Aðferðir til að bæta svefn, næringu og líkamlega hreyfingu.

Rannsókn frá árinu 2015 sýndi fram á að þátttakendur sem tóku þátt í námskeiðinu drógu úr læknisheimsóknum að meðaltali um 43% árið eftir að þeir tóku þátt.

Námsefnið er gagnreynt og vel rannsakað og finna má margar rannsóknir sem styðja þessa nálgun. Sjá nánar hér:
https://bensonhenryinstitute.org/smart-program/

Hugrún Linda Guðmundsdóttir er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni. Hugrún hefur sérhæft sig í streitustjórnun, seiglu, jákvæðri sálfræði og núvitund og hefur öðlast réttindi til að kenna þetta námskeið.

Námskeiðið er kennt 1 sinni í viku  í 2,5 klst í senn í 8 vikur.

Næstu  námskeið:

10. apríl – Laust 

Kennt á miðvikudögum kl. 9.30 – 12.00 

Kennt mánudaginn 29. apríl í stað 1.maí sem er frídagur –  Frí 15 maí. 

Nánari upplýsingar hjá Hugrúnu – hugrun@heillandihugur.is eða í síma 898-0500

Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði, m.a. sjóðir leik -grunnskóla- og framhaldsskólakennara.
Námskeiðið er samþykkt hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði.

Hugrún Linda Guðmundsdóttir

Félagsráðgjafi MA, markþjálfi og núvitundarkennari

Hugrún er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni. Hugrún hefur sérhæft sig í jákvæðri sálfræði, markþjálfun, streitustjórnun, núvitund og hugleiðslu.

Kaupa námskeið

Verð:

82.000 kr.

Öll námskeið

Við bjóðum upp á ráðgjöf, fræðslu, markþjálfun og námskeið fyrir hópa og einstaklinga.

Shopping Cart
Scroll to Top