Stefnumótun í eigin lífi
STEFNUMÓTUN Í EIGIN LÍFI
Við notum jákvæða sálfræði sem grunn í þessu námskeiði og skoðum hvað hefur áhrif á að lífið gangi vel og hvað hefur áhrif á vellíðan og velgengni í lífinu. Við skoðum hvernig hægt er að auka þessa jákvæðu þætti og blanda þeim inn í daglegt líf til að styrkja okkur enn frekar á lífsins leið.
- Við notum aðferð markþjálfunar til að leiða þig áfram í gegnum verkefni sem vekja þig til umhugsunar um það sem skiptir þig mestu máli í lífinu og hvernig þú vilt forgangsraða í framtíðinni.
- Þú gerir stöðuskýrslu á þínu lífi sem snýr að sálrænum, félagslegum og líkamlegum þáttum.
- Fjallað verður um lífsgildi, lífsmáta og drifkraft – Hvað er það sem drífur þig áfram?
- Þú færð tækifæri til að greina styrkleika þína og færð hugmyndir um hvernig þeir geta nýst þér til framtíðar í lífi og starfi.
- Fjallað verður um mikilvægi samskipta og sambanda við annað fólk, hlutverk þín, skyldur og ábyrgð.
- Við förum í tímanotkun, markmiðasetningu, skipulagningu og framtíðarsýn.
- Við skoðum það sem hindrar framgang og heldur okkur föstum í gömlum venjum, hugsunum og hegðun.
Námskeiðið byggir á aðferðarfræði markþjálfunar, hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði, styrkleikanálgun, lausnamiðaðri nálgun, og hugmyndafræði vellíðunar (well being). Einnig er stuðst við núvitundarþjálfun og ACT þjálfun.
Markþjálfun með nálgun jákvæðrar sálfræði (positive psychology coaching – PPC) á rætur sínar að rekja til vísindalegrar nálgunar á að aðstoða fólk við að auka vellíðan, finna og nýta styrkleika sína, auka árangur og ná markmiðum í samræmi við gildi sín, styrkleika, vonir og væntingar. Í ferlinu er lögð áhersla á leiðir til að komast yfir hindranir til að hver og einn geti blómstrað í lífi og starfi, upplifað sátt, jafnvægi og vellíðan.
Fagleg markþjálfun byggir á jafningjasambandi einstaklings og markþjálfa. Hún snýst um að hlúa að einstaklingi og styðja hann í samfelldu lærdómsferli og persónulegum þroska. Vinnan felst í að styðja, styrkja og efla hvern og einn til að ná þeim markmiðum sem hann setur sér hvort sem markmiðin eru tengd vinnu, heilsu, einkalífi eða öðrum sviðum lífsins. Ekkert í lífinu er undanskilið þegar kemur að markþjálfun.
Hugrún Linda Guðmundsdóttir er félagsráðgjafi MA, markþjálfi og núvitundarkennari með diplóma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði og diploma í mannauðsstjórnun. Hugrún er einnig jóga nidra og kundalini jógakennari og notar bæði vestræn vísindi og austræn fræði sem grunn í sinni vinnu.
Hugrún hefur unnið mikið með fólki sem er að ganga í gegnum breytingar eða lífskreppur og þarf að móta nýja framtíðarsýn hvort sem er í einkalífi eða starfi. Einnig með fólki sem glímir við streitu og þarf að læra að staldra við og skoða lífið frá öðru sjónarhorni, huga að andlegri heilsu og almennri vellíðan.
Kennt eru á þriðjudögum og og fimmtudögum 9.15 -11.15 í 4 vikur – samtals 8 skipti.
Hugrún Linda Guðmundsdóttir
Félagsráðgjafi MA, markþjálfi og núvitundarkennari
Hugrún er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni. Hugrún hefur sérhæft sig í jákvæðri sálfræði, markþjálfun, streitustjórnun, núvitund og hugleiðslu.
Kaupa námskeið
Verð:
80.000 kr.
Öll námskeið
Við bjóðum upp á ráðgjöf, fræðslu, markþjálfun og námskeið fyrir hópa og einstaklinga.
Hugrún Linda Guðmundsdóttir
Félagsráðgjafi MA, markþjálfi og núvitundarkennari
Hugrún er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni. Hugrún hefur sérhæft sig í jákvæðri sálfræði, markþjálfun, streitustjórnun, núvitund og hugleiðslu.