Verslun
-
Námskeið
Núvitund og jóga nidra – Verkfæri gegn streitu
42.000 kr.Þetta námskeið sameinar tvær áhrifaríkar aðferðir sem vinna vel gegn streitu og álagstengdum einkennum. Þetta er nærandi og slakandi námskeið fyrir þá sem eru að finna að streita trufli daglegt líf. Hér gefst tækifæri til að grípa í taumana og læra aðferðir til að róa og slaka taugakerfið.
Tímarnir byggja á stuttri fræðslu í byrjun hvers tíma þar sem fjallað verður meðal annars um taugakerfið, streituvalda og streitueinkenni og hvaða aðferðir er hægt að nota til að efla slökunarkerfi líkamans. Síðan verða gerðar núvitundaræfingar og öndunaræfingar og að lokum lagst í jóga nidra djupslökun.
-
Námskeið
Streitustjórnun og seigluþjálfun
82.000 kr.Stress management and resiliency training (SMART) ™
Þetta námskeið kennir fólki að draga úr streitu og streitueinkennum, ná meiri stjórn á viðbrögðum líkamans við streitu og langvarandi álagi, draga úr sjúkdómseinkennum og efla lífsgæði og vellíðan. Kenndar eru aðferðir til að efla innri styrk og seiglu en seigla er hæfileiki til að viðhalda heilbrigðu og stöðugu andlegu og líkamlegu ástandi í gegnum álag og streitu. Hægt er að þjálfa upp þennan eiginleika með ýmsum aðferðum.
-
Námskeið
Stefnumótun í eigin lífi
68.000 kr.Við notum jákvæða sálfræði sem grunn í þessu námskeiði og skoðum hvað hefur áhrif á að lífið gangi vel og hvað hefur áhrif á vellíðan og velgengni í lífinu. Við skoðum hvernig hægt er að auka þessa jákvæðu þætti og blanda þeim inn í daglegt líf til að styrkja okkur enn frekar á lífsins leið.
-
Námskeið
Jóga Nidra – Rafrænt
6.900 kr.Hér færðu 8 Jóga Nidra djúpslökunarhugleiðslur sem eru 20 – 40 mínútur hver. Þú getur hlaðið niður myndböndunum og átt þau í tölvunni eða símanum en líka er hægt að horfa/hlusta beint í gegnum linkinn.