Jóga Nidra – Hugarkyrrð og djúpslökun – 1x í viku

JÓGA NIDRA DJÚPSLÖKUN

Jóga Nidra er ævaforn hugleiðslu og djúpslökunaraðferð sem örvar líffræðilega ferla svefnsins til að fara inn á mörk svefns og vöku. Oft er talað um „jógískan svefn“ en til að geta sofnað á kvöldin þurfum við fyrst að sleppa tökum á hugsunum okkar og það er nákvæmlega það sem Jóga Nidra gerir, nýtir þennan náttúrulega feril til að aftengja hugsanir okkar og hvílast án þess að sofna.

Jóga Nidra losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Getur hjálpað til við að ná tökum á “burnout” einkennum, órólegum huga, kvíða, þunglyndi og til að létta álíkamlegum kvillum. 

Jóga Nidra er liggjandi hugleiðslutækni sem byggir á öndun og slökun, núvitund, líkamsvitund  og tengingu við hið innra sjálf.

Jóga Nidra er gott fyrir alla sem þurfa að róa og slaka taugakerfið. Með jóga nidra ástundun nær fólk oft góðri innri slökun og betri tengingu við sjálfan sig sem skilar sér svo í því að fólk nær betri tökum á öðrum þáttum lífsins. Jóga Nidra er líka gott fyrir alla sem eiga við svefnörðugleika að stríða. Langtímaástundun leiðir til betri svefns og betra jafnvægis í daglegu lífi.

Kennt er á miðvikudögum kl. 16.30 – 17.20  í 4 vikur.

Kennari: Hugrún Linda Guðmundsdóttir félagsráðgjafi MA.  Hugrún lærði að kenna Jóga Nidra hjá Kamini Desai og Amrit Yoga Institute og hefur Advanced réttindi þaðan.

Rafrænar Jóga Nidra hugleiðslur fylgja með námskeiðinu

Verð kr. 14.000

Hugrún Linda Guðmundsdóttir

Félagsráðgjafi MA, markþjálfi og núvitundarkennari

Hugrún er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni. Hugrún hefur sérhæft sig í jákvæðri sálfræði, markþjálfun, streitustjórnun, núvitund og hugleiðslu.

Kaupa námskeið

Verð:

14.000 kr.

Öll námskeið

Við bjóðum upp á ráðgjöf, fræðslu, markþjálfun og námskeið fyrir hópa og einstaklinga.

Hugrún Linda Guðmundsdóttir

Félagsráðgjafi MA, markþjálfi og núvitundarkennari

Hugrún er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni. Hugrún hefur sérhæft sig í jákvæðri sálfræði, markþjálfun, streitustjórnun, núvitund og hugleiðslu.

Shopping Cart
Scroll to Top